Ragnheiður og Hrafnhildur í stuði á HM |
|
|
Fimmtudagur, 16. desember 2010 08:38 |
Ragnheiður Ragnarsdóttir og Hrafnhildur Lúthersdóttir syntu á HM-25 í Dubai í morgun. Jakob Jóhann á frídag í dag.
Ragnheiður byrjaði daginn á að setja Íslandsmet í 100m skriðsundi er hún synti á tímanum, there á 54,44, bætti Íslandsmetið sitt frá því á IM-25 og varð í 21.sæti.
Hrafnhildur fór 100m fjórsund á tímanum 1:01,91 (22.sæti) og Ragnneiður á 1:01,98.(23.sæti) Þær voru báðar rétt við Íslandsmet Erlu Daggar Haralsdóttir sem er 1:01,77.
Jakob spjallaði við Jacky í gær og að hans sögn er laugin mjög hröð og aðstæður fyrsta flokks í alla staði. Á morgun keppir Jakob í 200m Bringusundi og Hrafnhildur í 100m bringusundi.
|