Skráning og Greiðsla Æfingagjalda
Sundfélagið Ægir notar rafrænt skráningarkerfi til að halda utan um skráningu og greiðslu æfingagjalda fyrir sundmenn. Aðeins er nauðsynlegt að stofna þátttakanda einu sinni í kerfinu og síðan er gengið frá skráningu á hvert námskeið eða fyrir hverja önn sundhóps (sjá upplýsingar um sundhópa og æfingagjöld).
Skráningarkerfið býður upp á eftirfarandi:
- Að nýta frístundastyrk frá Reykjavíkurborg og annarra sveitarfélaga upp í æfingagjöld.
- Að gengið sé frá greiðslu með greiðslukorti.
- Að gengið sé frá greiðslu með gíróseðli í heimabanka. Skipta má greiðslu á allt að 5 gíróseðla. Ath. að aukakostnaður fylgir gíróseðlum.
Smellið hér til að hefja skráningu og greiða æfingagjöld í rafrænu skráningarkerfi félagsins.
Ef viðkomandi hefur ekki tök á að nýta sér skráningarkerfið má skrá og ganga frá greiðslu með því að leggja inn á reikning félagsins og senda tölvupóst með upplýsingum um kennitölu og nafn þátttakanda, símanúmer og nafn og kennitölu forráðamanns á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Sundfélagið Ægir - Greiðsla æfingagjalda, lagt á reikning:
Kennitala Ægis: 420369-4929
Reikningsnúmer: 0115-26-008888
Netfang gjaldkera:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Upplýsingar í síma: 820-3156.
Síðast uppfært: 26.07.2018.
|