UPPSKERUHÁTÍÐ Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2016 verður haldin nú á laugardaginn 7. janúar, í sal sal Laugarlækjarskóla á milli kl. 11:00 og 13:00.
Uppskeruhátíðin er fyrir alla sundmenn í Ægi,jafnt unga sem eldri og forráðamenn þeirra. Á hátíðinni verður farið yfir helstu atburði liðins árs og veittar viðurkenningar til sundmanna eftir hópum, dosage allt frá Bleikjum og upp í Gullhóp félagsins.
Dagskráin verður með hefðbundnu sniði:
1. Aldursflokkaviðurkenningar veittar.
2. Viðurkenningar veittar til sundmanna frá þjálfurum.
3. Viðurkenningar veittar til sundmanna fyrir þátttöku í landsliðsverkefnum.
4. Guðrúnarbikararinn afhentur skv. reglugerð.
6. Tilkynnt hvaða sundmenn hljóta sundvörustyrk TYR og AquaSport.
Það er hefð fyrir því að sundmenn og forráðamenn þeirra komi með veitingar á sameiginlegt hlaðborð og biðlum við til ykkar foreldra að leggja okkur lið. Félagið leggur til kaffi og aðra drykki.
Við vonumst til að sjá sem flesta sundmenn félagsins á hátíðinni og forráðamenn þeirra.
Stjórnin.
|