Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Miðvikudagur, 06. desember 2017 21:18 |
Jólamót Ægis verður haldið sunnudaginn 10. desember í Laugardalslaug. Mótið er tvískipt og hefst með 800 og 1500 metra skriðsundi hjá eldri hópum en síðan er farið í styttri greinar. Dagskrá mótsins er sem hér segir:
Fyrri hluti:
- Upphitun hefst kl. 08:00
- Mót hefst kl. 08:30
- 800 metra skriðsund
- 1500 metra skriðsund
Seinni hluti:
- Upphitun hefst kl. 9:00 í innri hluta laugarinnar
- Sundsýning Bleikja 9:30 eða strax að loknum fyrri hluta
- Mót hefst að lokinni sundsýningu:
- 25 metra baksund
- 50 metra baksund
- 25 metra bringusund
- 50 metra bringusund
- 50 metra skriðsund
- 100 metra skriðsund
- 25 metra flugsund
- 50 metra flugsund
- 100 metra fjórsund
- Móti lýkur um kl. 12:00.
Tímataka og dómgæsla verður á mótinu.
Þetta er stórskemmtilegt innanfélagsmót þar sem flestir sundhópar taka þátt og börn í yngstu hópunum fá að stíga sín fyrstu spor á sundmóti. Þátttakendur verða úr Bleikjum, Löxum, Höfrungum, Brons, Silfur og Gull hópum. Foreldarar taka þátt í mótshaldinu með því að hjálpa til við tímatöku.
Þjálfarar ræða við sundmenn um þátttöku og greinar og senda skilaboð til foreldra.
|