Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Sunnudagur, 01. desember 2019 21:39 |
Jólamót Ægisverður haldið LAUGARDAGINN 14. DESEMBER í Laugardalslaug. Mótið er fyrir þátttakendur allt frá Bleikjum og upp í Garpa. Dagskrá mótsins er sem hér segir:
- Upphitun hefst kl. 08:30
- Mót hefst kl. 9:00:
- 25 metra baksund, 8 ára og yngri
- 50 metra baksund, opinn flokkur
- 100 metra baksund, opinn flokkur
- 25 metra bringusund, 8 ára og yngri
- 50 metra bringusund, opinn flokkur
- 100 metra bringusund, opinn flokkur
- Hlé
- 25 metra skriðsund, 8 ára og yngri
- 50 metra skriðsund, opinn flokkur
- 100 metra skriðsund, opinn flokkur
- 25 metra flugsund, 8 ára og yngri
- 50 metra flugsund, opinn flokkur
- 100 metra flugsund, opinn flokkur
- 100 metra fjórsund, opinn flokkur
- Móti lýkur um kl. 12:00.
Rafræn tímataka og dómgæsla verður á mótinu.
Þetta er stórskemmtilegt innanfélagsmót þar sem flestir sundhópar taka þátt og börn í yngstu hópunum fá að taka þátt í sínu fyrsta sundmóti. Þátttakendur verða úr Bleikjum, Löxum, Höfrungum, Brons, Silfur og Gull hópum. Foreldarar taka þátt í mótshaldinu með því að hjálpa til við tímatöku.
Þjálfarar ræða við sundmenn um þátttöku og greinar og senda skilaboð til foreldra.
Stjórnin.
|