banner_2.jpg
 
Aðalfundur Ægis 2022 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Laugardagur, 19. mars 2022 21:36

Aðalfundur Sundfélagsins 2022 verður haldinn þriðjudaginn 29. mars kl. 18:00 á efri hæð Laugardalslaugar. 


Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
   1. Setning
   2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
   3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
   4. Reikningar félagsins lagðir fram.
   5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp. 
   6. Lagabreytingar
   7. Ákvörðun um árgjald
   8. Kosningar:
       a) Kosning formanns til tveggja ára
       b) Kosning stjórnarmanna í laus stjórnarsæti til tveggja ára
       c) Kosning endurskoðanda og eins til vara
       d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR
   9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.
 10. Önnur mál.


Á fundinum verður kosið um laus stjórnarsæti. Þá er formaður félagsins kosinn sérstaklega. Framboð til formanns og stjórnar má tilkynna fyrir fundinn á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Lög og markmið Ægis má finna á heimasíðu félagsins. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  minnst þremur dögum fyrir fundinn.

Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Þar með talið eru stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæsla og vinna í foreldraráði.

  • Vinna í foreldraráði felur m.a. í sér fararstjórn í æfingaferðum, umsjá fatamála og fjáröflunar og að halda utan um félagsstarf sundhópa. Leitað er að tveimur einstaklingum fyrir hvern sundhóp félagsins til að taka að sér störf í foreldraráði. 
  • Árlega eru auglýst dómaranámskeið sem gefa réttindi til dómgæslu á sundmótum. Foreldrar eru hvattir til að sækja þau og í framhaldinu að dæma fyrir félagið. 

Foreldrar og aðrir sem vilja upplýsingar um eða gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Einnig er tekið við ábendingum á fundinum.

Allir velunnarar Ægis eru velkomnir á aðalfundinn. Allir félagsmenn í Sundfélaginu Ægi hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Félagsmenn teljast þeir sem greitt hafa árgjald eða æfingagjöld til félagsins eða forsvarsmenn sundmanna sem greitt hafa æfingagjöld til félagsins. 

Við vonumst til þess að sjá sem flesta félagsmenn á fundinum.

Stjórnin.

 
 

WorldClass