Jakob í 18 sæti í 100m bringsundi |
|
|
Mánudagur, 09. ágúst 2010 09:05 |
Jakob Jóhann Sveinsson var rétt í þessu að ljúka við að synda 100m bringusund á EM í Ungverjalandi. Jakob byrjaði sundi við 28.72 og endaði svo á tímanum 1.01.70 sem er besti tíminn hans á þessu tímabili og 0.4 sek frá Íslandsmetinu (1.01.32). Þar sem þrír Ungverjar voru í top 16 er Jakob fyrsti varamaður inn í undan-úrslit. Grátlega nálægt því að komast í undan-úrslit því 17.sætið fór á 1.01.67.
|