Aðalfundur Sundfélagsins Ægis 2020 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Fimmtudagur, 05. mars 2020 15:52 |
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis v/starfsársins 2019 verður haldinn miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 18:00 á efri hæð Laugardalslaugar. Á fundinum verður kosið um tvö laus stjórnarsæti. Framboð til stjórnar skal tilkynna fyrir fundinn á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða undir viðkomandi lið á fundinum. Lög og markmið Ægis má finna á heimasíðu félagsins. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. minnst þremur dögum fyrir fundinn. Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Þar með talið eru stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæsla og vinna í foreldraráði.
Foreldrar og aðrir þeir sem vilja gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. |