Uppskeruhátið fyrir árið 2018 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Sunnudagur, 13. janúar 2019 21:35 |
Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2018 verður haldin laugardaginn 19. janúar í Laugalækjarskóla. Hátíðin hefst kl. 11:00 og henni líkur um kl. 13:00. Hátíðin er fyrir sundmenn félagsins og aðstandendur þeirra, allt frá Bleikjum og upp í Gullhóp. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði: 1. Farið yfir helstu atburði ársins 2018.
2. Aldursflokkaviðurkenningar veittar sundmönnum fyrir árið 2018. ~
3. Viðurkenningar veittar til sundmanna frá þjálfurum.
5. Ægisskjöldurinn afhentur skv. reglugerð.
Ath. Til að hljóta viðurkenningu þarf sundmaður að hafa verið skráður í Sundfélagið Ægi í lok árs 2018.
Að venju óskum við eftir stuðningi frá foreldrum til að koma með veitingar á sameiginlegt hlaðborð. Ægir leggur til kaffi og aðra drykki. Við vonumst til að sjá sem flesta sundmenn og velunnara Ægis á hátíðinni. Stjórnin. |