Aðalfundur Sundfélagsins Ægis 2020 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 04. maí 2020 22:42 |
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis vegna starfsársins 2019 verður haldinn þriðjudaginn 12. maí kl. 18:00 á efri hæð Laugardalslaugar. Á fundinum verður kosið um tvö laus stjórnarsæti. Framboð til stjórnar skal tilkynna fyrir fundinn á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða með því að gefa sig fram undir viðkomandi lið á fundinum. Lög og markmið Ægis má finna á heimasíðu félagsins. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , minnst þremur dögum fyrir fundinn. Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Þar með talið eru stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæsla og vinna í foreldraráði.
Foreldrar og aðrir sem vilja upplýsingar um eða gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Allir velunnarar Ægis eru velkomnir á aðalfundinn. Allir félagsmenn í Sundfélaginu Ægi hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Félagsmenn teljast þeir sem greitt hafa árgjald eða æfingagjöld til félagsins eða forsvarsmenn sundmanna sem greitt hafa æfingagjöld til félagsins. |