IM 25 Laugardagur Úrslit |
Laugardagur, 13. nóvember 2010 20:03 |
Flottur árangur á náðist á mótinu í dag. search avant garde;">Eitt Íslandsmet (einnig Stúlknamet), rx 5 Íslandsmeistaratitlar - 3 Silfur og 3 Brons Íslandsmeistarar: Dagurinn hófst á 400m fjórsundi þar sem Steinunn María og Maríanna bættu sína tíma síðan í morgun. Anton Sveinn sigraði svo 400m fjórsund nokkuð örugglega og Sveinbjörn Pálmi Karlson tryggði sér þriðja sætið með glæsilegri bætingu 4:48,31. Ægir Benediksson bætti sig einnig og hafnaði í 8.sæti á tímanum 5:04,10. Í 100m baksundi setti Eygló Ósk nýtt glæsilegt Íslandsmet sem er líka Stúlknamet. Í 100m Bringusundi varð Karen Sif í öðru sæti á flottum tíma 1:12,37, Steinunn María í 4.sæti og Íris Emma með flotta bætingu í 5.sæti. Jakob Jóhann sigraði svo 100m bringu örugglega 1:01,10. Í 50m flugsundi synti Styrmir Már á sama tíma og í morgun 26.9 og hafnaði í 7.sæti. Þá var það 200m skriðsund þar sem þrefaldur Ægis-sigur náðist í kvenna flokki. Eygló Ósk varð í fyrst á 2:03.59, Jóhanna Gerða önnur á 2:04,88 og Karen Sif þriðja á 2:07,03. Jóna Björk varð svo áttunda 2:15,82. Að lokum náðu við svo silfur á brons í boðsundum. Stelpurnar (Eygló Ósk, Karen Sif, Jóhanna Gerða og Steinunn María) voru í öðru sæti og Strákarnir (Sigurður Örn, Jakob Jóhann, Styrmir Már og Anton Sveinn) í því þriðja. Nú er bara lokaspretturinn eftir og Ægiringar eru ekki vanir að slaka á í lokasprettinum... >>> Úrslit frá IM-25 2010 |