Undirbúningur fyrir næsta sundár |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson | |
Laugardagur, 08. júlí 2017 08:25 | |
Kæru sundmenn í Ægi. Nú er hafinn undirbúningur næsta sundárs. Að venju verður félagið með sundhópa sína bæði í Breiðholtslaug og í Laugardalslaug. Í Breiðholtslaug verða Gullfiskar, Bleikjur, Laxar, Höfrungar og Bronshópar og í Laugardalslaug verða einnig Laxa-, Höfrungahópar ef næg þátttaka næst ásamt Silfur- og Gullhópum, Garpa- og Demantahópum.
Æfingar eldri hópa hefjast í ágúst en Gullfiskanámskeið hefjast að venju í byrjun september. Opnað verður fyrir skráningar fljótlega í skráningarkerfi félagsins og verður það auglýst sérstaklega. Við vonumst til að sjá ykkur öll aftur hress og kát í haust. Stjórn og þjálfarar. |