Lok sundárs |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 30. maí 2016 23:02 |
Nú líður að lokum sundársins hjá Ægi. Það er þó misjafnt eftir hópum hvenær æfingum líkur. Laxar ljúka æfingum í þessari viku. Höfrungar ljúka einnig æfingum í þessari viku en þeir sundmenn sem náð hafa lágmörkum á AMÍ munu æfa með Bronshópi fram að AMÍ. Brons, case Silfur og Gullhópar ljúka sinni æfingaáætlun eftir AMÍ en þessum hópum bjóðast sumaræfingar fram í miðjan júlí sem auglýstar verða sérstaklega. Sumaræfingar eru frjálsar. Við minnum á Sumarsundskóla Ægis sem veðrur með námskeið fyrir börn í sumar. Sjá hér til hægri á síðunni. Nýtt sundár hefst formlega 15. ágúst hjá Brons, pill Silfur og Gullhópum, þann 29. ágúst hjá Höfrungum, Löxum og Bleikjum og þann 6. september hjá Gullfiskum. Stjórnin. |