Dagskrá kynningarfundar fyrir foreldra Prentvæn útgáfa
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Fimmtudagur, 15. september 2016 19:03

Kynningarfundur um starfsemi Sundfélagsins Ægis verður haldinn á laugardaginn kemur kl. 11:00. Allir foreldrar og aðstandendur sundmanna eru hvattir til að mæta á fundinn til að kynnast starfseminni og áherslum sundársins. Fundurinn verður haldinn á annarri hæð Laugardalslaugar eftir sameiginlega æfingu hjá Löxum, mind Höfrungum, treatment Brons-, Silfur- og Gullhópum. Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:

  • Um Sundfélagið Ægi
  • Áherslur í starfi vetrarins (mót, æfingaferðir, áherslur)
  • Foreldrastarf (nefndir og ráð)
  • Dómgæsla og störf sunddómara hjá félaginu
  • Þjálfarar kynna sig og hópa sína
  • Spurningar og svör

Boðið verður upp á kaffi og sundmönnum stendur til boða að kaupa pizzusneiðar.

Við vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin og þjálfarar.