Ægir með ungt lið á Reykjavíkurmeistaramóti |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Mánudagur, 14. janúar 2019 08:49 |
Sundfélagið Ægir var með ungt lið á Reykjavíkurmeistaramótinu í sundi sem fram fór um helgina. Mótið skilaði Ægiringum 7 Reykjavíkurmeistaratitlum og 21 verðlaunum í 2-3 sætI. Ægir var ekki með keppendur í karla- og kvennaflokki. Frábær árangur hjá ungu liði Ægis, sem endaði í 4. sæti stigakeppninnar og gaman að sjá hve margir ungir og efnilegir sundmenn eru að koma upp í gegnum félagið. Ægir var framkvæmdaraðili mótsins og við þökkum foreldrum, dómurum og tæknifólki sem tóku þátt í þessu með okkur kærlega fyrir aðstoðina á mótinu. Þá þökkum við ÍBR fyrir stuðninginn. Stjórnin. |