Niðurstöður aðalfundar 2020 |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Fimmtudagur, 14. maí 2020 22:06 |
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis var haldinn 12. maí síðastliðinn. Eftirfarandi breytingar urðu á stjórn félagsins: Ólafur Örn Ólafsson lauk 4 ára stjórnarsetu og tók Guðni Einarsson sæti hans til tveggja ára. Sundfélagið Ægir þakkar Ólafi fyrir frábært starf sem gjaldkeri félagsins. Þá gaf Helgi Þór Þórsson kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu til tveggja ára. Eftirtaldir stjórnarmenn sitja áfram til eins árs: Ásgeir Ásgeirsson formaður, Júlía Þorvaldsdóttir og Hildur Björk Kristjánsdóttir. Ný stjórn mun skipta með sér verkum á fyrsta fundi og kjósa fulltrúa í Sundráð Reykjavíkur. Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum. Þá fól fundurinn nýrri stjórn að endurskoða lög félagsins í heild sinni auk annarra verkefna.
|